Ragga sagði dreymandi: Mér finnst svo gaman að borða, eins og til dæmis hamborgara með hnífapörum..
4 feb 2012
0 |
5.2.2012 02:26:27
#
Ég hringdi í ömmu. Svona var samtalið.
Amma:Sæl elskan mín,ég var að koma úr búð með mömmu þinni
Ég: Já ok er hún þarna?
Amma: Já,viltu tala við hana?
Ég: neinei ég ætlaði nú bara aðeins að heyra í þér.
Amma:Jæja,hvað segirðu
Ég:Allt ágætt bara, Flóki er að fara með pabba sínum upp í sveit og..
Amma pínu pirruð: Hérna,mamma þín er hérna,talaðu bara við hana..
2 feb 2012
0 |
5.2.2012 02:24:15
#
Flóki:" Mamma sjáðu..!" sagði hann og sýndi mér Lego kall
Ég: "mmhm"
Flóki:"þú átt ekki að segja bara mmhmm,þú átt að segja já,flott.."
Ég:"Já,flott.."
Flóki:" Ohh ekki herma eftir mér"
30 jan 2012
0 |
5.2.2012 02:23:05
#
Ég heilsaði gömlum skólafélaga í bónus á selfossi í gær. Flóki varð forvitinn og spurðu hver þetta hafði verið. Ég sagði að þetta væri bara strákur sem ég kannaðist við frá því í gamla daga. "Hvað heitir hann?" spurði Flóki "Auðunn " svaraði ég. Flóki varð þvílíkt hissa og spurði hálf skelkaður:"He..heitir hann AUGUN?"
24 jan 2012
0 |
5.2.2012 02:21:43
#
Ég við Flóka: "Ég á allra bestu drengina"
Flóki:" Ekki alveg jafn góðir"
"Nú??"spyr ég
"Já," sagði Flóki "ég er náttúrulega aaðeins aaaðeins miklu betri"
24 jan 2012
0 |
5.2.2012 02:21:15
#
Var að stríða Herði mínum,sem er lasinn og var að leika sér í tölvunni.."Hvað ertu að gera?"spurði hann mig pirraður! "Æ ég er bara að bögga lasna snúðinn minn"
Eftir smá stund kom hann og tók í hausinn á mér og hristi hann.. "hvað ertu að gera..?"spurði ég hann hissa "Ég er bara að bögga heilbrigðu kleinuna mína"
23 jan 2012
0 |
5.2.2012 02:20:46
#
Vinur hennar mömmu sótti okkur í gær til að skutla okkur á selfoss. Hann á pug hund sem Flóki hlakkaði til að hitta. Þegar við komum í bílinn var hundurinn ekki í bílnum. "Hvar er Moli?" spurði Flóki. Mamma svaraði að hann hafi orðið eftir heima því það hafði ekki verið pláss fyrir hann. Þá setti Flóki upp fýlusvip og tautaði við Hörð: "Afhverju gast þú bara ekki verið heima hjá þér Hörður"
23 jan 2012
0 |
5.2.2012 02:20:17
#
Flóki þarf alltaf að hafa einhvern hjá sér þegar hann þarf að nota salernið. Áðan þurfti hann að gera númer tvö og var búinn að vera ansi lengi. Mér finnst ekkert ofsalega gaman að standa þarna og fylgjast með honum með skeinirinn í höndunum svo ég fór að ýta á eftir honum. "Það er bara einn pííínu lítill eftir... en hann er bara frosinn.."
22 jan 2012
0 |
5.2.2012 02:19:42
#
?"Gjörðu svo vel,gjörðu svo vel" sagði Flóki við mig þegar hann hélt dyrunum opnum fyrir mig "Afhverju sagðirðu það tvisvar Flóki minn" spurði ég hann "Af því fyrst opnaði ég hurðina og svo ætla ég að loka henni á eftir" sagði hann þá "Nú,takk fyrir, takk fyrir" sagði ég við hann og kyssti hann á kinnina. Hann brosti þá á móti og sagði:"Ekkert að þakka,ekkert að þakka"
17 jan 2012
0 |
5.2.2012 02:18:54
#
Flóki er að gera Snorri bróðir geðveikan með allskonar spurningum um tölvuleikinn sem Snorri er í. Ég sagði Flóka að hætta að spyrja svona rosalega mikið. Þá sagði hann með þjósti: "Mamma...!! Ég er lítill og vitlaus... og ég veit ekki neitt..!!..... og ég er líka meinlaus..!"
14 jan 2012
0 |
5.2.2012 02:18:11
#
Mamma gleymir stundum hvað Flóki minn er klígjugjarn.
Hann hljóp á klósettið að pissa og var með flatköku í hendinni. Þá sagði mamma við hann:"Passaðu nú að missa ekki flatkökuna í klósettið,það er ekki hægt að borða hana þegar hún er öll út í pissi." Flóki kúgaðist um leið,spýttu útúr sér flatkökunni og henti restinni klósettið. Mamma bað hann afsökunar og sagðist hafa verið að grínast.
Seinna um daginn fékk hann aðra flatköku. Þegar hann tók við henni leit hann biðjandi á ömmu sína og sagði"Amma,ekki grínast aftur.."
14 jan 2012
0 |
5.2.2012 02:17:39
#
Flóki er hjá mömmu í orlofi,þar heyrðust þessi fleygu orð: Þegar ég verð fullorðinn ætla ég að vera strákurinn minn - ég ætla að vera með flash-lappir sem hlaupa rosalega hratt, með Jókerhatt og Batman-grímu sem kemur aftur og aftur þó hún detti!
13 jan 2012
0 |
5.2.2012 02:16:28
#
Ég Hörður og Flóki höfum verið að skoða "Hvar er Valli" bækurnar sem hann á. Þegar Flóki velur hvað á að finna segir hann alltaf "Þið áuð að finna.." Ég leiðrétti hann í hvert sinn en það breytir engu hann segir alltaf "áuð". EItt sinn varð ég pirruð og sagði"Eigið, Flóki.. eigið,eigið eigið.."
Flóki leit á mig fúll "Ég geeet ekki segið eigið"
10 jan 2012
0 |
5.2.2012 02:15:18
#
Við Hörður vorum að horfa á Men in Black í gærkveldi. "Þessi geimvera er alveg eins og typpi.." sagði ég. Hörður leit á mig og sagði hikandi: "Ok,hvað var að Guðmundi?"
8.jan 2012
0 |
5.2.2012 02:14:26
#
Hörður við Flóka: Ég elska þig meira an allir fiskarnir í sjónum.
Flóki: Huh,ég held að stóri hvalurinn í sjónum elski mig meira en þú.
6 jan 2012
0 |
5.2.2012 02:11:22
#
Hörður: "Mamma,það er kona í bandaríkjunum eða einhverstaðar sem er heimsmeistari í kappáti,giskaðu hvað hún er þung?" Ég giskaði rangt og Hörður sagði mér að hún væri 46 kg. Þá skyndilega bætti Flóki við:"Mamma,giskaðu hvar hún á heima..!!?"
4 jan 2012
0 |
5.2.2012 02:10:49
#
Flóki:"Mamma,það er eitthvað að tölvunni,kallinn min getur hvorki hreyft legg né lið..!!"
30 des 2011
0 |
5.2.2012 02:10:00
#
Flóki er með miklar pælingar þessa dagana varðandi dauðann. Í gærkvöldi velti hann þessu einstaklega mikið fyrir sér. Hvað mundi gerast ef allar ömmurnar,afarnir,mömmurnar og ömmu Rúnurnar mundu deyja."Þá verð ég svo einmana og sakna ykkar" Þá sagði ég að hann væri þá orðinn fullorðinn og mundi sjá um sig sjálfur. Svo væri Hörður alltaf hjá honum. "En ef allir deyja,líka Hörður.. !! Þá verð ég bara einn,fullorðinn pabbi... og ég kann ekki einu sinni að LESA...!!"
30 des 2011
0 |
5.2.2012 02:09:29
#
Flóki varð fúll áðan þegar við ætluðum út í göngutúr með mömmu. Hann sló til mín í fýlu og svo sló hann frá sér aftur aðeins seinna og hitti Þá ömmu sína. "Fyrirgefðu amma,ég hélt að mamma væri að standa þarna.."
26 des 2011
0 |
5.2.2012 02:08:08
#
Við Flóki stóðum í röð í búð. Þá kom starfsmaður og benti á næsta kassa og sagði:"Það er líka opið hér" Flóki sagði þá við mig :"Flýttu þér" og byrjaði að toga í kerruna en ég hreyfði hana ekki af því við vorum hvort sem er næst á okkar kassa og annar maður fór þá á nýja kassann. Þá fórnaði Flóki höndum og dæsti pirraður:"OOoohhh,fráábært..!!"
22 des 2011
0 |
5.2.2012 02:07:25
#





